Vaxandi erfiðleikar fyrir Breta eru aðalatriði skýrslu Michel Barnier, aðalsamningamanns ESB, og lekið var til Guardian og birt 15. janúar. Kröfur ESB verða að frjálst flæði fólks til Bretlands nái til aðlögunartímans og þeirra sem komið hafa inn fyrir árslok 2020 en ekki til 29. mars 2017, eins og Bretar hafa viljað. Þá fá Bretar ekki aðild að fríverslunarsamningum ESB nema með \"leyfi\" frá Brussel og Bretar verði aðilar að sjávarútvegsstefnunni út aðlögunartímann. Þá segir Guardian að Norðmenn hafi þráfaldlega varað við að Bretar geti samið um víðtæk fríðindi sem „special relationship“ umfram eitthvað minna í sniðum, eins og fríverslunina við Kanada. Ef ekki þurfi að semja um betri tengsl fyrir Noreg. Þá segir Guardian að Frakkar séu mótfallnir fríðindum fyrir breskar fjármálastofnanir að komast inn um \"bakdyrnar\" í Luxemburg.
Vaxandi erfiðleikar fyrir breta
Fleiri fréttir
Nýjast
Náttfari
Stórmenni kveður
Dagfari
Sigurvegarar kjarasamninganna
Dagfari