Íslenskur iðnaður og íslensk fyrirtæki hrópa á fleiri fagmenntaða starfsmenn. Það er alveg sama hvar borið er niður, alltaf er viðkvæðið það sama hjá íslenskum atvinnurekendum; okkur vantar fleiri fagmenntaða starfsmenn. Nú er svo komið að þetta er það sem vegur einna þyngst er atvinnurekendur eru spurðir um hvað hrjái þá helst í rekstri sinna fyrirtækja. Þetta kom meðal annars fram í erindi Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns SI, sem hún flutti á sjávarútvegsráðstefnunni sem haldin var í Hörpu í síðustu viku.
Nánar á
https://www.si.is/frettasafn/vantar-fleiri-fagmenntada-starfsmenn