Það er heldur betur vaðið á súðum í Ritstjóraþætti kvöldsins á Hringbraut þar sem Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Sigurðsson láta nokkurn veginn allt gossa í fjörugum umræðum um lyktir sænsku þingkosninganna, mögulega eða ómögulega úrsögn úr EES og undarlega hræðslu við þriðja orkupapakka ESB.
Þeir undrast báðir þá vaxandi umræðu hér á landi hvort ekki eigi að skoða úrsögn úr EES, en slíkt væri algert þjóðarslys að þeirra mati með hörmulegum afleiðingum fyrir íslenskt efnahagslíf, en við tæki margra ára rándýrt verkefni við gerð tvíhliðasamninga við önnur ríki sem yrði utanríkisráðuneytinu einfaldlega ofviða - og niðurstaðan þar að auki skelfileg fyrir alla afkomu þjóðarinnar.
Þeir segja ótta þjoðernissinnaðra hægrimanna við þriðja orkupakka ESB vera storm í vatnsglasi - og aðeins til heimabrúks, enda standi Ísland einfaldlega utan evrópska orkumengisins og regluverk ESB í þeim efnum hafi því engin áhrif hér á landi. Allt tal um annað sé aðeins til þess gert að gera Brussel-valdið tortryggilegt - og auðvitað gagnist það ákveðinni klíku hér á landi.
Svo minnast þeir á komandi þingvetur, hann verði hasarkenndur, þó ekki sé nema sakir róttækari verkalýðsforystu, en blíða og klára konan sem leiði ríkisstjórn verði nú að passa sig á svolunum tveimur, sem standa þétt til hvorrar hliðar við hana, svo hún kremjist ekki á milli þeirra, segir Jón Baldvin á meðan nafni hans glottir.
Ritstjórarnir byrja klukkan 21:30.