Uppskrift af besta heitarétti sem þú munt bragða

Já, ég lýg því ekkert, þetta er einfaldlega besti heitirétturinn. Ég hef gert þennan rétt marg oft í veislum og klárast hann alltaf upp til agna og er ég alltaf beðin um uppskrift.

Svo hér er hún komin á rafrænt form: 

Innihald:

  • 2x mexíkó ostur (ég hef vanalega notað texmex ost en hann var ekki til og þessi réttur varð ekkert síðri) 
  • 1x skinku og beikonostur
  • 1 líter rjómi
  • Tæpir 2 pakkar brauðtertubrauð 
  • 1 pakki niðurskornir sveppir
  • 3 pakkar pepperóní
  • 1 stór beikon pakki
  • Rifinn ostur

Aðferð

Bræða í potti alla ostana með rjómanum á lágum hita, þegar það er orðið vel bráðið bætið þið niðurskornu beikoni út í og leyfið að malla dágóða stund. Bætið svo niðurskornu pepperóní og sveppum við allt saman og leyfið því að vera smá stund í rjóma sósunni svo bragðið blandist vel saman.

\"20171001_124552\"

Rífið þar næst brauð í bita og leggið þétt í botninn á eldföstu móti. Hellið rjómasósunni yfir og setjið svo annað lag af brauði og svo koll af kolli.

Í lokin stráið þið rifnum osti yfir allt saman og setjið inn í ofn í um það bil 20 mínútur eða þar til osturinn er vel bráðinn og gullinn.