Unglingar héngu aftan á strætó á ferð - sjáðu myndbandið

„Er nokkuð viss um að ef þessir drengir gerðu sér í hugarlund mögulegar afleiðingar af þessari iðju að þá held ég að þeir myndu vonandi hugsa sig tvisvar um að endurtaka leikinn.“

Þetta skrifar Guðmundur Örn Ingvason á Faceboook og birtir myndband af þremur unglingum hangandi aftan á strætó. Vagninn var að keyra Rofabæinn í Árbæ og eins og sést á myndbandinu fer hann yfir nokkrar hraðahindranir. 

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.