Alþýðulýðveldið Kína hefur geysiþýðingu fyrir Afríkuríkið Zimbabwe. Þar hafa Kínverjar fjárfest fyrir milljarða dollara.
Nú þarf Kína að dansa línudans. Ef vinir Kína þau Robert Mugabe og frú Grace Mugabe biðja um pólitískt hæli í Kína hverju svara Kínverjar þeirri ósk?
Vissulega neita þeir og segja þeim að snúa sér annað. Þessu munu aðrir skjólstæðingar Alþýðulýðveldsins Kína taka eftir. Til dæmis leiðtogi Norður Kóreu.
Líkur eru að að þau hjón fari frá Zimbabwe en hvert þau fara er óljóst. Sagt er að þau haldi til Singapúr. Ekki eru þau sögð velkomin í Suður Afríku.
Ítök Kína í Zimbabwe verða lítil eftir brotthvarf Robert Mugabe og Grace Mugabe því Kína setti allt sitt traust á þau hjóni og vanrækti að tengjast öðrum en þeim og þeirra nánustu.
Ýmsar áleitnar spurningar í Beijing velta á því hvað er raunverulega að gerast í Zimbabwe eins og sakir standa. Og hvað Kínverjum ber að aðhafast í Zimbabwe í framtíðinni.
Kínverskir kommúnistar voru fúsir og færir til að kosta ummyndun Zimbabwe. Hve mikið fé kostaði það Kína spyr nú Xi ríkisoddviti Alþýðulýðveldisins Kína? Og er það fé glatað sem og öll áhrif Kína í Zimbabwe?
Smánarlegt hlutverk Alþýðulýðveldisins Kína í að tryggja völd Robert Mugabe og frú Grace Mugabe er nú til skoðunar hjá einbeittum hópi hæfileikamanna í Zimbabwe.
Ringulreiðin og spillingin á valdaárum hjónanna og tengsl þeirra við Kína verða nú skoðuð í nýju ljósi.
Kína þarf að búa sig undir skaðast stórlega.