Í Fjarðabyggð er þegar búið að segja upp um 15 manns vegna loðnubrests. Ef fram fer sem horfir og aflabrestur verður í loðnu munu laun starfsmanna í sjávarútvegi lækka um 13 prósent og launatekjur íbúa í sveitarfélaginu munu lækka um fimm prósent. Þetta kom fram í greinargerð fjármálastjóra Fjarðabyggðar í morgun og Mbl.is greinir frá.
Í greinargerðinni segir að á meðan staðan sé svona verður ekki ráðið í ýmis tímabundin störf. Einnig segir að líkleg langtímaáhrif muni leiða til frekari fækkunar starfsfólks og að velta fyrirtækja sem eru beintengd þjónustu við sjávarútvegsfyrirtækin muni lækka um nærri 600 milljónir króna. Þá muni tekjur sveitarsjóðs og hafnarsjóðs lækka um 260 milljónir króna frá fjárhagsáætlun ársins 2019. Samdráttar muni einnig gæta í öðrum atvinnugreinum og smitast um samfélagið.
Að meðaltali hefur tæplega 40 prósent af öllum loðnuafla síðustu 5 ára komið að að landi í Fjarðabyggð, að því er kemur fram í frétt Mbl.is. Útflutningsverðmæti loðnuafurða sem komu að landi í sveitarfélaginu námu um 10 milljörðum króna á síðasta ári.