Vinahót Kanye West og Donalds Trump Bandaríkjaforseta á Twitter í gær fóru ekki framhjá neinum, ekki heldur eiginkonu Kanyes, Kim Kardashian.
Kanye tísti mynd af rauðri derhúfu með „Make America Great“ slagorði Trumps, áritaðri af forsetanum og kallaði hann „bróður“ og sagði að jafnvel ekki mafían fengi sig til að elska hann ekki. „Við erum báðir með drekaorku,“ tísti Kanye og talaði líka um að Obama hefði verið átta ár í embætti en ekkert hefði breyst í Chicago. Það flaut svo með í straumi tístanna að hann elskaði Hilary líka.
Trump tísti til baka: „Takk Kanye, mjög kúl!“ Seinni partinn tísti svo Kanye að Kim konan sín hefði hringt og viljað að hann gerði fólki ljóst að hann væri ekki sammála öllu sem Trump gerði. „Ég er ekki 100% sammála neinum nema sjálfum mér.“
Kim bætti svo við á Twitter í gærkvöldi að skoðanir Kanyes á Trump væru allt aðrar en hennar. „En þetta eru hans skoðanir... Hann hefur aldrei sagst sammála pólitíkinni hans“ og seinna að Kanye myndi aldrei hlaupa á eftir almenningsálitinu og þess vegna elskaði hún hann og virti.
Thank you Kanye, very cool! https://t.co/vRIC87M21X
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 25, 2018
my MAGA hat is signed