Tveggja ára gömlu barni líklega vísað úr landi

Síðastliðið sumar úrskurðaði Útlendingastofnun að vísa skuli ungri albanskri stúlku úr landi. Stúlkan, Erna Reka, er fædd hér á landi og er tæplega tveggja ára gömul. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur nú vísað kröfu foreldra hennar, Nazife og Erion, um að fella úrskurðinn úr gildi frá. Þetta kemur fram á Vísi.is.

Lögmenn foreldra Ernu munu funda síðar í dag til að fara betur yfir málið og taka ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað til Landsréttar. Verði það ekki gert verður Ernu að óbreyttu vísað úr landi.

Vísir greinir frá því að Nazife og Erion hafi fyrst komið hingað til lands árið 2015, þá sem hælisleitendur. Þau fengu atvinnuleyfi og störfuðu á hóteli í Reykjavík þar til þeim var vísað úr landi. Þau komu hins vegar aftur til landsins stuttu síðar og sóttu í það skiptið um dvalarleyfi.

Útlendingastofnun taldi að 102. grein útlendingalaga, sem segir að óheimilt sé að vísa útlendingi úr landi hafi hann átt fasta óslitna búsetu hér frá fæðingu samkvæmt þjóðskrá, ætti ekki við í tilfelli Ernu þar sem lögheimili barna hælisleitenda og umsækjenda um dvalarleyfi eru skráð með öðrum hætti en annarra barna sem hér fæðast.

Nazife og Erion eru þessu hins vegar ósammála og kröfðust frávísunar meðal annars á þeim forsendum að mismunandi skráning lögheimila barna sé brot á 2. grein barnasáttmálans, sem kveður á um að óheimilt sé að mismuna börnum vegna stöðu foreldra sinna.