„Við vorum bara eins nánir og tveir nafnar geta verið“, segir Tryggvi Rúnar Brynjarsson, barnabarn Tryggva Rúnars Leifssonar, eins sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem lést árið 2009 og hvers dagbækur voru til þess að málið var tekið upp að nýju og fimm menn sýknaðir af drápi á mönnunum tveimur. Tryggvi Rúnar Leifsson hlaut þrettán ára fangelsisdóm fyrir aðild sína í málinu árið 1980. Tryggvi Rúnar yngri skrifaði meistararitgerð sína í sagnfræði um sakamálið og þá sérstaklega um afa sinn í því.
Endurupptaka málsins hófst með því að dagbók afa Tryggva úr fangelsinu var send Gísla Guðjónssyni réttargeðlækni sem taldi sannað að í málinu hefðu sakborningar farið með falskar játningar. Fjölskyldan krafðist endurupptekningar sem úr varð og í kjölfarið voru fimm í málinu sýknaðir af því að hafa banað mönnunum tveimur á áttunda áratug síðustu aldar.
Tryggvi Rúnar segir: „Hann tók á móti mér þegar ég fæddist. Klippti á naflastrenginn, mamma mín var rosalega ung og einstæð þegar hún átt mig. Ég bjó hjá þeim fyrstu árin og afi minn var alltaf til staðar fyrir mig þegar mamma var í útlöndum að vinna“. Tryggvi Rúnar bætir við:
„Ég fékk að kynnast þessum manni sem var ... og nú áttaði ég mig á því að það var ekki hægt að sjá á þessum manni að hann hafði gengið í gegnum það sem hann gekk í gegnum“, rifjar Tryggvi upp.
„Hann var svo sterkur svo uppréttur og sjálfstraustið, það geislaði af honum einhvers konar jákvæð orka“.
Þá sagði Tryggvi Rúnar að ekkert gæti komist nálægt því að laga það sem afi hans hafi þurft að þola af hendi íslenska ríkisins.
Aðspurður hvort Tryggvi Runar heitinn hafi talað við nafna sinn um Guðmundar- og Geirfinnsmálið segir Tryggvi aldrei. Tryggvi Rúnar lést árið 2009 og þá var Tryggvi yngri orðinn 16 ára og bjó hjá afa sínum og ömmu. Hann segist þá fyrst hafa haft tækifærið nema afi hans þá verið of veikur.
„Þannig að ég hafði ekki þessar samræður við afa minn, ég hef ekki fengið að tala við hann en dagbækurnar sem hann skrifaði í einangrun ... það sem þessi gögn gerðu fyrir mig, ég bara get ekki byrjað að lýsa því“.