Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur slegið af leiðtogafundinn með Kim Jong-un, leiðtoga Norður Kóreu, sem átti að vera 12. júní í Singapúr. Forsetinn tilkynnti þetta í bréfi sem hann sendi Kim.
Í bréfinu segir Trump að því miður telji hann ekki við hæfi að halda fundinn miðað við þá feiknarlegu reiði og fjandskap sem komi fram í síðustu yfirlýsingu Kims. Trump þakkar Kim fyrir að láta lausa bandarísku gíslanna sem komu heim nýlega, það hafi verið fallega gert og mikils metið.
Hann segist hlakka til að hitta Kim einhvern tíma og ef hann skipti um skoðun varðandi þennan mikilvæga fund, þá skuli Kim ekki hika við að hringja eða skrifa sér.