Einleikur Charlotte Böving, ÉG DEY var nýlega frumsýndur í Borgarleikhúsinu á Nýja sviðinu. Charlotte Bøving er höfundur og hugmyndasmiður þar sem hún skoðar dauðann og lífið sitt á hvað. Aðalleg frá sjónarhorni lífsins.
Trúir þú á líf fyrir dauðann? Er til dæmis spurt í kynningarbæklingi leikhússins.
Með sýningunni fylgir útfararprógram fyrir útför Charlotte sjálfrar sem leikhúsgestir fá og þar með er tóninn sleginn fyrir frumlega sýningu sem kemur stanslaust á óvart.
Charlotte er gestur Lindu í 21 í kvöld. Þar segist hún vilja fá fólk til að hugsa um dauðann sem að hennar mati sé hálfgert feimnismál.