Fólk sem leitar í Jafnréttishús og hefur orðið fyrir hatursfullri og meiðandi framkomu í sínu daglega lífi vill ekki kæra hatursorð eða hatursglæpi því það vantreystir lögreglu. Þetta segir Amal Tamimi forstjóri Jafnréttishúss, en hún er sérfræðingur í málefnum innflytjenda. Hún segir að mjög fáir treysti lögreglu hér vegna erfiðrar reynslu af lögreglu frá löndum sem þau koma frá. Hún telur afar mikilvægt að lögregla fái fræðslu um þetta og vinni með innflytjendum, læri af þeim því við það skapist traust. Það sé ekki nóg að dreifa bæklingum því staðreyndin sé til dæmis sú að um helmingur Araba sem hingað koma séu ólæsir.
Amal er gestur Margrétar Marteinsdóttur í frétta- og umræðuþættinum 21 í kvöld.
Farðu heim til þín!
Amal er fædd og uppalin í Palestínu og hefur búið á Íslandi í 23 ár. Hún segist oft hafa orðið fyrir hatursfullri framkomu hér, fólk sem vissi að hún skildi ekki íslensku hafi samt talað við hana á íslensku. Það hafi valdið henni miklum óþægindum og vanlíðan. Henni hefur oft verið sagt að fara aftur heim til sín. Þá sé verið að vísa til þess að hún fari aftur til Palestínu en ekki í Hafnarfjörðinn þar sem hún á heima. Hún segir að ástandið hafi versnað mikið eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Þá hafi hún iðulega þurft að segja: ,,Já ég er múslími en ég er góð.“ Það er eitthvað að í samfélaginu okkar segir Amal og til að laga það þarf fólk með ólíkan bakgrunn að kynnast hvert öðru.
Nánar er rætt við Amal í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.