Tómas: „sturtaði frá mér þrítugsaldrinum með mat“

„Lygar og feluleikir eru algjörlega órjúfanlegur hluti af fíknihegðuninni og það er alveg ótrúlegt hvað það er erfitt að fá hjálp við matarfíkn. Ég vona samt að það sé komið eitthvað lengra núna en það var á þeim árum.“

Þetta segir Tómas Þór Þórðarson fjölmiðlamaður í opinskáu viðtali í nýjasta tölublaði Mannlífs, sem kom út í dag. Hann segist ekki mikið gefinn fyrir breytingar almennt en fáir hafa þó gert jafn miklar breytingar á lífi sínu og Tómas á síðustu árum, enda hefur hann misst 120 kíló á fimm árum. Eftir að hann missti öll þessi kíló hefur margt breyst.

„Á rosalega skömmum tíma var ég farinn að geta gert alls konar hluti sem ég hafði ekki getað áður. Ég hafði til dæmis ekki getað farið í vinnuferðir til útlanda síðan 2008 þegar ég fór á EM í Frakklandi 2016. Ég hafði bara einu sinni á þeim tíma farið í flug, í afmælisferð með pabba til Manchester 2014. Ég var bara fangi á Íslandi. Síðan ég fór í aðgerðina hef ég farið í endalausar flugferðir, bæði vegna vinnunnar og til að skemmta mér með kærustunni.“

Hann segir það stórkostlegt að geta gengið um allt. „Og ég get gengið. Ég veit ekki hvort nokkur maður áttar sig á því hvernig það er að geta ekki labbað nema 60 metra í einu og geta ekki staðið í lappirnar meira en fjórar mínútur í einu án þess að þurfa að setjast, þannig að mér finnst næstum því eins stórkostlegt að geta gengið um allt eins og að sjá alla þessa stórkostlegu staði.“

Tómas, sem hefur starfað hjá Sýn og stýrt útvarpsþætti Fótbolta.net við góðan orðstír um árabil, var nýverið ráðinn yfir til Símans. Þar verður hann ritstjóri enska boltans, en Síminn hafði sem kunnugt er betur gegn Sýn með tilboði sínu í sýningarréttinn fyrir ensku úrvalsdeildina. Hann segist ánægður með nýja starfið.

„Svo er ég náttúrlega kominn með minn eigin sjónvarpsþátt sem ég hélt að myndi aldrei gerast, það var verið að kaupa mig í aðra vinnu og ég er kominn í sambúð. Þannig að hlutirnir hafa gengið alveg rosalega hratt fyrir sig eftir að ég loksins komst í stand til að gera venjulega hluti í lífinu, ná frama í vinnunni og verða ástfanginn til dæmis.“

„Mér finnst ég engan tíma mega missa þar sem ég sturtaði frá mér þrítugsaldrinum með mat, þannig að markmiðið er að reyna að gera eitthvað af viti á þessum blessaða fertugsaldri,“ segir Tómas.