Tobba og kalli gengu í það heilaga á ítalíu í gær: glæsileg í brúðarkjólnum - sjáðu myndirnar

Tobba Marinósdóttir og Karl Sigurðsson gengu í það heilaga í gærkvöldi á Ítalíu með vini og fjölskyldu viðstödd. Tobba hefur undanfarnar vikur gert grín að sjálfri sér yfir því að hafa fallið í þá gryfju að breytast í svokallaða „Bridezillu“ og hefur hún gengið ansi langt til þess að breyta sjálfri sér fyrir brúðkaupið eins og hún orðaði sjálf.

Klikkuð vika hjá Tobbu og allt gengur á afturfótunum rétt fyrir giftingu: „Ég hef misst vitið“ – Lesa meira

Margar, ef ekki flest allar konur upplifa mikla pressu fyrir brúðkaup sitt enda vilja þær að allt gangi vel og að þær skarti sínu fegursta þennan merkilega dag.

\"Tobba

Tobba var að vanda glæsileg í brúðkaupinu og þrátt fyrir að allt heimilisfólkið hafi lagst í flensu örfáum dögum fyrir brúðkaup virðist allt hafa gengið vel og brúðhjónin hamingjusöm.

\"Tobba

Við óskum Tobbu og Kalla innilega til hamingju með daginn stóra í gær.