Tíu vilja stjórnarsæti í vís

Tíu manns hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Vátryggingafélags Íslands en stjórnin skal skipuð fimm aðalmönnum og tveimur til vara.

Þetta kemur fram í tilkynningu VÍS til Kauphallarinnar. Tilnefningarnefnd mun nú fara yfir framboð og vinna samkvæmt samþykktum félagsins og starfsreglum nefndarinnar og birta þann 11. desember 2018 rökstudda tillögu að samsetningu stjórnar.

Eftirtaldir einstaklingar gáfu kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Elvar Árni Lund, framkvæmdarstjóri Íspólar ehf. 
Gestur Breiðfjörð Gestsson, framkvæmdarstjóri Sparnaðar ehf.
Hlynur Hreinsson, framkvæmdarstjóri xp Iceland  ehf.
Magnús Jónsson, framkvæmdarstjóri Aktor ehf.
Marta Guðrún Blöndal, yfirlögfræðingur ORF líftækni
Sveinn Friðrik Sveinsson, fjármálastjóri SFS
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fjárfestir 
Ólöf Hildur Pálsdóttir, sjálfstætt starfandi 
Valdimar Svavarsson, framkvæmdarstjóri Civitas  
Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst

Svanhildur Nanna, Gestur Breiðfjörð og Valdimar sitja í núverandi stjórn VÍS.

Þá kemur fram í tilkynningunni að Svanhildur Nanna hafi sagt sig úr tilnefningarnefnd VÍS þann 30.nóvember síðastliðinn, þar sem hún hefur gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins.