Þuríður: „ekki smart að sjá bjarna og sigurð inga hlæjandi við símana sína undir ræðu ingu“

„Nú ætla ég að þakka Ingu Sæland sérstaklega fyrir hennar ræðu, ég verð þó að segja að mér fannst ekki smart að sjá Bjarna Ben. og Sigurð Inga hlæjandi við símana sína á undir ræðu Ingu.“

Þetta segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag. Þar fjallar Þuríður um Stefnuræðu forsætisráðherra sem og ræður annarra þingmanna. Henni fannst þó ræða Ingu Sæland standa upp úr. Þuríður Harpa segir:

„Hún (Inga) spurði hvernig ætla stjórnvöld að standa við öll stóru orðin og loforðin sem lofuð voru í aðdraganda síðustu kosninga? Þá var þessi fræga setning sett fram og örugglega varð þessi setning til þess að margir kusu akkúrat þann sem þetta sagði: „Stjórnvöld eiga ekki að biðja fátækt fólk að bíða eftir réttlæti!“

Þuríður Harpa segir öryrkja enn bíða eftir réttlæti og bendir á að að strípaður örorkulífeyrir sé í dag rúmar 247.000 kr. f.sk. sem í hennar huga ber ekki vott um réttlæti. Hún segir:

„Þrátt fyrir tæpar 10.000 kr. í skattalækkun sem kemur inn of seint, þá er þessi upphæð lítilsvirðandi við fólk sem á allt sitt undir réttlætiskennd stjórnvalda,“ segir Þuríður Harpa og bætir við að lokum:

„Í dag er strípaður örorkulífeyrir rúmum 30.000 kr. lægri en atvinnuleysisbætur og ef fram fer sem horfir mun gliðnun milli örorkulífeyris og lægstu launa verða enn meiri á næsta ári. Ég hlýt að spyrja er þetta réttlæti stjórnvalda gagnvart fötluðu og langveiku fólki, eða mun eitthvað verða gert til að bæta kjör þessa hóps?“