Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur spáð því að árið 2020 verði þunglyndi meginorsök örorku í heiminum og að streita og þunglyndi kosti bandarískan efnahag um 300 milljarða dollara á ári í tekjur. Eða að um 3-4 prósent af landsframleiðslu tapist vegna heilsubrests á vinnustað.
Kulnun er hugtak sem er notað yfir það þegar fólk brennur út í starfi. En þetta ástand sem skapast eftir langvarandi og alvarlega streitu er skilgreint af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni sem örmögnun (e. vital exhaustion).
„Vanlíðan og alvarleg veikindi vegna streitu varða almannahag. Þetta er mikið áhyggjuefni,“ segir Alma D. Möller landlæknir. „Streita er langstærsta ástæða heilsubrests og brottfalls á vinnustöðum landsins. Konur sem eru um fertugt eru stærsti hópurinn sem leitar sér aðstoðar en ungir karlmenn eru líka stækkandi hópur,“ segir Alma og vísar í tölfræði VIRK sem hefur það hlutverk að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/landlaeknir-erum-a-vakna-vi-vondan-draum