Þroskahjálp skorar á seltjarnarnesbæ að draga hækkanir til baka

Í gær var greint frá því að Seltjarnarnesbær hafi samþykkt að hækka leigu í félagslegum íbúðum sínum um 45 prósent. Mun hækkunin eiga sér stað í áföngum yfir næstu sex mánuði. Þroskahjálp segir fréttirnar sláandi og hvetur bæjarstjórn til þess að draga hækkanirnar til baka.

Í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ segir að fréttirnar séu sláandi í ljósi þess að Seltjarnarnesbær nýti ekki útsvarsstofn sinn að fullu og að meðaltekjur íbúa sveitarfélagsins séu einna hæstar í landinu.

„Það er ólíðandi að hækka útgjöld þeirra sem minnst hafa á milli handanna áður en tekjustofnar sveitarfélaga eru fullnýttir og er sveitarfélagið með þessari ákvörðun að hlífa þeim sem efnameiri eru á kostnað fólks sem nýta þarf félagslegan stuðning.“

Í tilkynningunni er auk þess bent á að í Seltjarnarnesbæ séu aðeins 4 félagslegar íbúðir á hverja 1.000 íbúa, eða 17 alls, á meðan í nágrannasveitarfélaginu Reykjavík séu þær 20 á hverja 1.000 íbúa.

„Landssamtökin Þroskahjálp skora á Seltjarnarnesbæ að draga til baka þessar óhóflegu hækkanir á leigu félagslegra íbúða og leita leiða til þess að mæta hallarekstri bæjarins án þess að það bitni á þeim sem höllum fæti standa,“ segir að lokum í tilkynningunni, en frá árinu 2015 til dagsins í dag hefur sveitarfélagið verið rekið með 731 milljóna króna halla.

Bæjarfulltrúar Samfylkingarnar hafa einnig gagnrýnt þessa ákvörðun harðlega og bent á að þessi hækkun væri mjög undarleg forgangsröðun á sama tíma og kjarasamningur bæjarstjóra er uppfærður. Laun bæjarstjóra bæjarins, Ásgerðar Halldórsdóttur, eru nú um 2 milljónir króna á mánuði. Laun bæjarstjóra hækkuðu um 40 prósent árið 2016.