Þrír úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna skipulagðrar brotastarfsemi

Þrír menn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. júlí á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi.

Mennirnir voru handteknir í viðamiklum aðgerðum lögreglunnar fyrr í mánuðinum, líkt og áður hefur verið greint frá. Rannsóknin snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti.

Alls voru sjö handteknir í aðgerðunum og ráðist var í níu húsleitir. Í framhaldinu voru fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald, en einum þeirra hefur nú verið sleppt úr haldi.

Aðgerðirnar eru liður í baráttu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn skipulagðri brotastarfsemi.