Þriðji ungi maðurinn er látinn eftir skotárás í miðborg Malmö í gærkvöldi. Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglunnar í morgun. Þrír eru særðir eftir árásina og er einn þeirra alvarlega særður, að því er fram kemur á vef mbl.is. Allir sem tengjast málinu hafa áður komist í kast við lögin og tengjast skipulagðri glæpastarfsemi.
Talsmaður lögreglunnar, Stefan Sintéus, sagði á blaðamannfundinum að það væri alltaf sorglegt þegar ungt fólk létist. Alls voru sex fluttir á sjúkrahús eftir að skotið var á mennina þegar þeir yfirgáfu netkaffihús um klukkan 20 að staðartíma í gærkvöldi. Að sögn Sintéus skapaðist mikil ringulreið á vettvangi enda ekki vitað hvort um hryðjuverk væri að ræða. Hann biður þá sem veitt geta upplýsingar um árásina að hafa samband, hvort sem um myndir eða aðrar upplýsingar er að ræða.
Lögreglan vildi ekki staðfesta frásagnir vitna í fjölmiðlum um að sjálfvirkum vopnum hafi verið beitt í árásinni og segir Niklas Kirchhoff sem stýrir rannsókninni að tæknirannsókn muni leiða í ljós hvernig vopnum var beitt, segir í frétt mbl.is.