Á dögunum birtist grein – skemmtilegt nokk á Net-Mogga –, um það, að einn öfgafyllsti hægriflokkur Norðurlanda, Svíþjóðardemókratarnir, hefði hætt að berjast gegn ESB-aðild Svía.
Færðu þeir stefnuna yfir í það, að berjast fyrir breytingum á ESB innan frá, í stað þess, að berjast fyrir úrsögn. Svíþjóðardemókratar sáu auðvitað sæng sína upp reidda með það, að barátta fyrir útgöngu væri vonlaus, en skoðanakannanir í Svíþjóð sýna, að 77% landsmanna eru ánægðir með veru Svíþjóðar í ESB, en aðeins 7% óánægð.
Það eru ekki bara Svíþjóðardemókratar, sem eru að sjá að sér og breyta sinni ESB-stefnu, ESB í vil, heldur líka flestir aðrir þjóðernis- og hægri-öfga-flokkar í Evrópu. Má þar nefna Enhedslisten í Danmörku, AfD í Þýzkalandi, FÖP í Austurríki, Lega Nord og 5-stjörnu hreyfinguna á Ítalíu, Front National í Frakklandi o.s.frv.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/skodun/1000547760-d-b-vg-oleant