„Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknar tilkynnti í dag að hún muni bjóða sig til að leiða framboðslistann í Norðaustur kjördæmi en það sæti vermir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hún skrifar þetta á Facebook síðu sína nú í hádeginu:
Framundan eru alþingiskosningar. Þær snúast öðru fremur um trúverðugleika og traust í stjórnmálum. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til að leiða B-lista Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi. Ég er reiðubúin að vinna með öllu framsóknarfólki til að ná aftur sterkri stöðu flokksins í kjördæminu.Meira en einn af hverjum þremur landsmönnum vill sjá Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn. Nýtum þann byr og að því vil ég vinna landi og þjóð til heilla.”
Varaformaður þingflokksins, Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi tekur undir tilkynninguna og óskar Þórunni sérstaklega góðs gengis.
Þórunn hefur setið á þingi fyrir Norðausturkjördæmis síðan 2013 og meðal annars setið í miðstjórn Framsóknarflokksins undanfarin sjö ár.
Sigmundur Davíð var aftur á móti þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður frá 2009 eða þar til hann settist á þing fyrir Norðausturkjördæmi 2013.