Þórólfur: rúv ekki þjóðarnauðsyn eins og heilbrigðiskerfið

Þórólf­ur Gísla­son er kaup­fé­lags­stjóri Kaup­fé­lags Skag­f­irðinga. KS velti um 36 milljörðum króna á síðasta ári. Þá skilaði það fimm milljörðum króna í hagnað. KS á ríflega fimmtungshlut í Morgunblaðinu og þriðjungshlut í Brim hf. Þórólfur var í ítarlegu viðtali í í Morgunblaðinu í gær. Þar var hann spurður af hverju félagið ákvað að taka þátt í fjölmiðlarekstri eftir hrun.

„Við lítum þannig á að það sé mikilvægt að til staðar séu vandaðir fjölmiðlar sem ekki eru ríkisreknir. Ríkið er fyrirferðarmikið á þessum markaði sem er ekki hollt til lengdar, og í raun mjög umhugsunarvert, enda þörfin ekki eins brýn og áður var. Ríkið rak einu sinni dreifikerfi á kartöflum, en er hætt því sem dæmi. Þessi mikli rekstur ríkisins á fjölmiðlum býður upp á ákveðna hættu. Að fjölmiðillinn verði ríki í ríkiskerfinu og leiði skoðanamyndun. Við þekkjum það í löndum þar sem ekki er virkt lýðræði, að þar eru ríkisfjölmiðlar mjög fyrirferðarmiklir.

Þá segir Þórólfur að Ríkisútvarpið sé ekki þjóðarnauðsyn og er það skoðun hans að það eigi að vera val skattgreiðenda hvort halda eigi Ríkisútvarpinu gangandi.

„Þetta er ekki þjóðarnauðsyn eins og heilbrigðiskerfið. Þetta er ekki lengur einn af grunnþáttunum. Ég held að menn eigi markvisst að draga úr hinum miklu umsvifum Ríkisútvarpsins. Ekki síst til þess að tryggja lýðræðisstöðuna í landinu.“