Auður Jónsdóttir átti í spjalli við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir, formann Viðreisnar á vef Kjarnans og birtis samtalið undir fyrirsögninni „Það sem má ekki ræða“
Meðal þess sem þeim fór á milli var um búvörusamningana, ESB, #metoo, sjávarútveginn og hvað það þýðir að vera frjálslyndur í pólitík.
Brot úr samtalinu er hér að neðan.
Auður spyr:
Tvær mætar vinstri sinnaðar konur fóru fögrum orðum um þig, hvor í sínu lagi, og sögðust báðar hafa konuskot í þér. Getur verið að það bendi til að stjórnmálaásinn sé að breytast úr vinstri versus hægri yfir í frjálslyndi versus íhald. Hvað segir þú um þetta?
Þorgerður brosir og viðurkennir að sér þyki vænt um að heyra um konurnar, slíkt haldi sér við efnið og færi henni vissu um að hún sé á réttu ferðalagi.
„Síðan er það þessi ás sem er að teiknast upp svo skýrt. Þar sem frjálslyndi er skýrasta mótvægið við íhaldsásinn. Það er hægt að benda víða á dæmin en nærtækt er að hugsa til Trump og hvernig við horfum upp á hegðun hans. Auðvitað er hægt segja að hann hagi sér eins og vitfirringur og allt það. En umhverfið leyfir honum að fara sínu fram. Fyrir vikið er þetta ekki lengur broslegt eða vandræðalegt heldur stórhættulegt.“
„Og það er þetta íhaldssama umhverfi,“ heldur hún áfram eftir dálitla umhugsun. „Valdaumhverfi, þar sem verið er að vernda völd og ákveðna sérhagsmuni. Hinn ásinn er frjálslyndið. Það hafnar slíkum sjónarmiðum og hagsmunum. Það stuðlar að því að hafa allt opið og gagnsætt. Sjálf hef ég svolítið þurft að laga mig að því, komandi úr öðruvísi stjórnmálaumhverfi, ég viðurkenni það,“ segir hún. Og bætir við að auðvitað kunni nálgun sín á hin ýmsu málefni að markast að einhverju leyti af því að vera alin upp af jafnaðarmanni annars vegar og femínista hinsvegar.
Síðar í viðtalinu spyr Auður:
Finnst þér öðruvísi að vera stjórnmálakona núna en fyrir tuttugu árum?
„Já – og mér finnst betra … að vera kona í dag í stjórnmálum,“ svarar hún en tekur fram að auðvitað ríki því miður ennþá ákveðin viðmið og mynstur gagnvart konum.
„En þú ert þó ekki alltaf á varðbergi líkt og áður var, þótt vaktinni ljúki aldrei alveg. Þú ert ekki stöðugt að berjast fyrir öllu eins og fyrir það fyrsta að láta hlusta á þig. Eða ítrekað að þola að það sem þú segir sé tekið upp af einhverjum karli og klappað fyrir því.“
Þorgerður segir í samtalinu að #metoo hafi hjálpað sér mikið:
„Já, mjög mikið,“ segir hún loks með þunga. „Ég á vissulega mínar sögur. Sem ég er þó ekki tilbúin til þess að fara út í. En – eins leitt og er að segja það – þá var ótrúlega gott að finna allar þessar konur sem höfðu líka sínar sögur. Og augljóslega voru þarna líka svakalegir hlutir sem ég hef ekki reynslu af. En á tuttugu árum … gerist margt. Líka ýmislegt sem ég þarf einn daginn að klára gagnvart sjálfri mér. En mér fannst #metoo hjálpa mér mikið”.
Allt samtalið má sjá hér á Kjarnanum.