„Mér finnst þetta fullkomin eftirgjöf hjá ríkisstjórn, sem hefur drjúgan meirihluta. Það var ósköp dapurlegt að sjá þetta ráðaleysi og þessa störukeppni undir lokin. Mér finnst með ólíkindum að það skuli vera gefið eftir gagnvart svona óbilgirni og yfirgangi.“
Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í samtali við Fréttablaðið. Samkomulag um að þinglok eru nú í höfn. Þriðja orkupakkanum og innflutningi á fersku kjöti hefur verið frestað þar til í lok ágúst. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kveðst sáttur og segir að ríkisstjórnin nái nú að ljúka sínum málum en Þorgerður Katrín telur niðurstöðuna vera fullkomna eftirgjöf hjá ríkisstjórninni.
Þá segir Þorgerður Katrín að ríkisstjórnin taki ekki skuldbindingar á alþjóðavettvangi alvarlega. Þorgerður Katrín sagði við Fréttablaðið:
„Mér finnst þau ekki taka skuldbindingar okkar alvarlega. Það eru íslenskir hagsmunir sem eru beintengdir alþjóðaskuldbindingum okkar. Þar liggja hagsmunir okkar Íslendinga. EES-samningurinn hefur breytt íslensku samfélagi og aukið tækifæri og möguleika ungs fólks og fyrirtækja.“