Skopmynd Morgunblaðsins í dag hefur vakið mikla athygli og þykir hún merki um karlrembu og aldagamla hugsun.
Þetta er aðeins brot úr frétt Fréttablaðsins. Hér má lesa fréttina í heild sinni.
„Sál Morgunblaðsins undir núverandi ritstjórn opinberuð í skopmynd. Konur eru bara mismunandi tegundir af fegurðardrottningum. Sem stela plássi af alvöru mönnum,“ segir Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, um skopmyndina.
Umrædd mynd sýnir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra í gervi fegurðardrottningu. „Gamlir íhaldskarlar voru aldrei að fara að vinna þessa fegurðarsamkeppni unga fólksins,“ er Áslaugu lagt í munn.
Helgi Sigurðsson, skopteiknari Morgunblaðsins, hefur áður verið sakaður um karlrembu, útlendingahatur og áróður gagnvart hinsegin og trans fólki.
Þetta er aðeins brot úr frétt Fréttablaðsins. Hér má lesa fréttina í heild sinni.