Þórarinn: „nákvæmlega ekkert kúl að deyja 27 ára þegar maður er enn ungur og vitlaus“

„Ég þurfti að vísu að fá krabbamein í karlmennskuna til þess að viðurkenna fyrir sjálfum mér að það er nákvæmlega ekkert kúl að deyja 27 ára þegar maður er enn ungur og vitlaus.“

Þetta segir Þórarinn Þórarinsson blaðamaður í pistli í Fréttablaðinu. Þórarinn taldi að hann myndi falla frá langt fyrir aldur fram. Ungur svolgraði hann í sig áfengi og reykti ótæplega. Í pistlinum sem hefur vakið nokkra athygli segir Þórarinn að ungir karlmenn séu leiðinlegasta dýrategundin á jörðinni. Þeirra versta tímabil sé á milli tvítugs og þrítugs og þá verri óværa en lúsmý og gjammandi púðluhundar til saman, líkt og Þórarinn orðar það. Hann segir:

„Samkvæmt lögmálinu á þetta að byrja að rjátlast af okkur um þrítugt en sjálfur er ég svo seintækur að þá var ég enn að harma að hafa ekki tekist að drepast 27 ára. Það er nefnilega svo töff. Svona eins og Brian Jones, Jim Morrison, Janis Joplin, Jimi Hendrix, Kurt Cobain og síðar blessunin hún Amy Winehouse,“ segir Þórarinn og bætir við:

„Huggun mín gegn þessum harmi var að ég dó óeiginlega 27 ára þegar þunglyndið sem hafði lengi vomað yfir mér helltist yfir mig og skrúfaði í framhaldinu alkóhólismann minn upp að hættumörkum þannig að eina vitið var að reyna að elta 27 ára klúbbinn og „skemmta“ mér við að hámarka óhamingjuna.“

Síðan liði mörg og dapurleg ár sem gengu helst út á það að deyja ekki of mörgum árum eldri en söngvarinn Jim Morrison.

„Tók mig heil átján ár af brúarbrennum og bömmerum að fatta að það væru ekki fleiri nætur eftir til þess að reyna að kveikja í,“ segir Þórarinn. En nýverið breyttist líf blaðamannsins þegar hann greindist með krabbamein. Þá hafi hann áttað sig á og viðurkennt fyrir sjálfum sér að það væri „nákvæmlega ekkert kúl að deyja 27 ára þegar maður er enn ungur og vitlaus“

Þá segir Þórarinn: „Kemur svo vel á vondan klisjuhatarann sem ég er að þurfa loksins að viðurkenna fyrir sjálfum mér að líf mitt var sjálfdauð klisja.“ Hann endar svo pistilinn á þessum orðum:

„Samkvæmt appinu sem heldur utan um nýja lífið mitt hef ég nú þegar sparað rúman 150 þúsund kall á að hætta að reykja og drekka þannig að klisjan um að það er aldrei of seint að byrja upp á nýtt hentar mér greinilega betur.“