Þóknun booking talin vera 5 ma.kr.

Ferðamálastofa hefur sent ábendingu til Samkeppniseftirlitsins um starfsemi bókunarsíðunnar booking.com. Telur Ferðamálastofa álitamál hvort skilmálar fyrirtækisins standist samkeppnislög þar sem þeir feli mögulega í sér íþyngjandi skilyrði fyrir viðskiptavini þess og hindri þar með eðlilega samkeppni. Í því ljósi bendir margt til að markaðshlutdeild booking.com hafi náð yfir 50% á umræddum markaði og á þeirri forsendu er líklegt að fyrirtækið teljist hafa markaðsráðandi stöðu hérlendis.

Skilmálar bókunarsíðunnar víða umdeildir

Ferðamálastofa hefur beint því til Samkeppniseftirlitsins að það taki til skoðunar skilmála booking.com um svokallaða bestukjarameðferð. Í skilmálunum felst að viðskiptavinum fyrirtækisins, til að mynda íslenskum hótelum og gististöðum er ekki heimilt að bjóða upp á betra verð en sem fram kemur á bókunarsíðum booking.com. Komi slík staða upp verður söluaðili gistingar annað hvort að bjóða ferðamanni að borga lægra verðið eða greiða honum mismuninn, hafi hann borgað hærra verðið. Gildir einu hvort hið lægra verð kemur fram á vefsíðu þess gististaðar, sem í hlut á, eða hjá samkeppnisaðilum booking.com.

Umtalsverð söluþóknun

Booking.com innheimtir umtalsvert háa þóknun af þjónustu sinni sem nemur að lágmarki 15% af heildarkostnaði gistingar. Því má áætla að söluþóknun fyrirtækisins vegna sölu gistingar á Íslandi nemi að minnsta kosti fimm milljörðum króna á ári. Samkeppnisyfirvöld víða í Evrópu hafa gert athugasemdir við starfsemi og þar með skilmála fyrirtækisins, þar með talið vegna umræddrar bestukjarameðferðar, sem hefur í kjölfarið víða verið breytt. Hinir umdeildu skilmálar koma þó enn fram í þjónustusamningum fyrirtækisins við íslenskra ferðaþjónustuaðila.

Ferðamálastofa fylgist með þróun ferðaþjónustu, neytendavernd og samkeppnishæfni greinarinnar í samræmi við lögbundið hlutverk sitt. Mikilvægt er að rekstrarskilyrði ferðaþjónustuaðila séu gegnsæ og sanngjörn og byggi á lögmálum virkrar samkeppni.