Þjóðverjar bættu við tveimur gullum

Þjóðverjar eru komnir með 13 gullverðlaun, jafnmörg og Norðmenn eftir 13. keppnisdag Vetrarólympíuleikanna í Pyeongchang, en Norðmenn eru með fleiri verðlaun samtals.

Meðal úrslita í dag var að Þjóðverjar unnu norrænu tvíkeppnina, Svíinn Andre Myhrer vann óvænt gull fyrir Svía í svigi karla (mynd) og Michelle Gizin frá Sviss varð sigurvegari í alpatvíkeppni kvenna.