Þjálfari minniboltaliðs ÍR í flokki 11 ára stúlkna, Brynjar Karl Sigurðsson, ætlar að stíga til hliðar eftir að stúlkur sem hann þjálfar lásu upp yfirlýsingu á körfuboltamóti um helgina. Neituðu þær að taka við verðlaunum eftir að hafa unnið Íslandsmeistaratitil á mótinu.
Málið vakti mikla athygli í gær og varð yfirlýsing stúlknanna, sem báru það fyrir sig að þær vildu frekar mæta strákum heldur en stúlkum, mikið umræðuefni á samfélagsmiðlum. Ákvörðunin um að Brynjar stígi til hliðar var niðurstaða fundar sem stóð langt fram á nótt að sögn Guðmundar Óla Björgvinssonar, formanns körfuknattleiksdeildar ÍR. Á fundinum hittust fulltrúar deildarinnar, þjálfarinn og foreldrar stúlknanna
„Félagið er óendanlega stolt af árangri sinna leikmanna sem urðu Íslandsmeistarar í minnibolta 11 ára stúlkna og unnu silfurverðlaun í 7. flokki stúlkna. Þessi árangur byggist á áralangri þrotlausri vinnu og metnaði leikmanna og þjálfarateymis flokksins.“ Það að taka ekki við gullverðlaununum eða bikarnum sé hins vegar „ekki í samræmi við gildi Körfuknattleiksdeildar ÍR þar sem virðing og háttvísi verður alltaf að vera í fyrirrúmi hvað sem öðru líður.“ Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem var send eftir fundinn.
Hringbraut greindi frá því gær að stelpurnar hafi sent frá sér yfirlýsingu og sögðu að ekki væri við Brynjar að sakast. Þær sögðu enn fremur að þetta hafi verið algjörlega þeirra ákvörðun að taka ekki á móti verðlaununum.
„Við stelpurnar áttum hugmyndina um að ekki taka við verðlaununum. Þetta var ekki Brynjari að kenna og okkur líður vel saman og elskum Brynjar. Þið getið ekki tekið okkur í sundur. Okkur finnst óréttlátt að þið takið dætur ykkar úr íþróttinni sem þær elska mest. Við erum pirraðar út í foreldrana en allir gera mistök og það er asnalegt að viðurkenna þau ekki. Við erum pirraðar að KKÍ hunsar og vanvirðir okkur og við þurftum að gera eitthvað í því. Kannski fórum við yfir strikið en nú vitum við hvar línan er. Markmið okkar er að breyta heiminum og þá þarf maður að fara yfir strikið. Við getum ekki breytt heiminum einar án Brynjars. P.s. 12 grein barnasáttmálans“
Hér að neðan má sjá bréfið sem þær skrifuðu.
.