Fjórir þingmenn Miðflokksins hafa óskað eftir að lögmaður þeirra afli frekari gagna í hinu svokallaða Klaustursmáli. Lögmaður þeirra hefur nú lagt fram kröfu til Persónuverndar um aukna gagnaöflun í málinu. Meðal þeirra gagna sem er óskað eftir eru upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum varðandi millifærslur á fjármunum inn á persónulegan reikning Báru Halldórsdóttur.
Krefst lögmaðurinn, fyrir hönd skjólstæðinga sinna, að fá mánaðar yfirlit yfir allar innlagnir á bankareikning Báru. Staðfestir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar þetta í samtali við RÚV. Klaustursmálið hefur verið til umfjöllunar hjá Persónuvernd síðan í desember síðastliðnum.
Krafa lögmanns þingmannanna snýst ekki eingöngu um að fá afhent gögn um persónulegan bankareikning Báru, heldur er einnig krafist frekari gagna úr öryggismyndavélum á svæðinu í kringum Klaustur bar. Einnig er krafist gagna frá fjarskiptafyrirtæki Báru um öll smáskilaboð og símtöl úr síma hennar yfir tveggja daga tímabil.
Lögmaður þingmanna Miðflokksins hefur haft mikið að gera undanfarið vegna málsins, en hann fór með málið fyrir bæði héraðsdóm og Landsrétt. Kröfum þingmanna var hafnað á báðum dómstólum.