Jón Steindór var í Vikulokunum ásamt Gunnari Braga Sveinssyni, þingmanni Miðflokksins, og Steinunni Þóru Árnadóttur, þingmanni Vinstri grænna. Þau ræddu meðal annars um starfstengdar greiðslur sem þingmönnum standa til boða, einkum vegna ferðalaga og húsnæðis- og dvalarkostnaðar.
\"Það væri til bóta að einfalda þessar reglur og hafa þær þá upp á yfirborðinu,“ sagði Gunnar Bragi. Hann sagði að starfskjör þingmanna væru slæm og ættu að vera betri. „Ég man ekki eftir neinu ári síðan ég settist á þing sem ég get sagt að ég hafi verið í fríi,“ sagði Gunnar Bragi og vísaði meðal annars til símtala og erinda við sig þegar hann hefði átt að vera í fríi að nafninu til.
\"Það eru þessar aukagreiðslur sem gera þetta, æi má maður sletta, dubious, eða hefur yfirbragð á sér,“ sagði Gunnar Bragi og vísaði til greiðslna sem þingmönnum standa til boða. Gunnar Bragi sagðist skilja tortryggni þegar hlutir lægju ekki ljóst fyrir. Hann sagðist þurfa að gera Alþingi grein fyrir útgjöldum sínum. Einu sinni hefði verið óskað upplýsinga og hann orðið við því. Þar hefði honum þótt skrifstofa Alþingis sinna sína starfi vel.
Hann gerði húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðslur landsbyggðarþingmanna að umræðuefni: \"Það sér hver einasti maður að 135 þúsund kall fyrir að leigja íbúð eða halda heimili í Reykjavík er brandari. Þetta er bara grín. Þetta er bara upphæð sem, auðvitað skiptir hún máli. Síðast þegar ég leigði í Reykjavík þá var ég að leigja íbúð þar sem ég gæti tekið á móti börnunum mínum. Ég borgaði 230 þúsund krónur í leigu fyrir þá íbúð. Það endaði á því að ég fór og keypti mér íbúð, það var einfaldlega hagstæðara.“ Hann sagði að mánaðarlegar greiðslur fyrir gistikostnaði í kjördæminu dygðu fyrir einni nótt.
\"Mér finnst þetta háar tölur,“ sagði Gunnar Bragi um kílómetrafjölda og akstursgreiðslur þingmanna sem birtust í svari forseta Alþingis við fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar um aksturskostnað þingmanna: \"Ég hins vegar var að reikna í huganum á leiðinni í stúdíó. Ef ég færi fjörutíu heimferðir á Sauðárkrók á ári þá væru það 25 þúsund kílómetrar. Bara þessi litli hluti af akstrinum er fljótur að telja,“ sagði Gunnar Bragi í Vikulokunum í morgun