Þingmenn fórna skoðunum sínum í von um ráðherraembætti úr lófa bjarna

Þriðji orkupakkinn mun fara nær því að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn en nokkuð mál annað. Sýnilegt er að margir þingmanna flokksins hafa kokgleypt fyrri skoðanir sínar og gengið til liðs við ráðherrasveitina. Skoðanir sem þeir opinberuðu ítrekað. Hvað veldur þessum sinnaskiptum? Þetta kemur fram á Miðjunni.

„Ein ástæðan fyr­ir því er sú að holl­usta við for­ingja hvers tíma hef­ur alltaf verið mik­il í flokkn­um og mik­il­væg í að halda svo breiðum flokki með ólík sjón­ar­mið inn­an­borðs sam­an.“

Er það allt? Liggur fleira að baki?

„Önnur ástæða gæti verið sú, að þeir hinir sömu hafi augastað á ráðherra­embætti, sem gæti verið laust og vilji ekki eyðileggja mögu­leika sína á því að koma þar til greina.“

En gerist svona?

„Allt er þetta skilj­an­legt. Slík­ur sveigj­an­leiki er nauðsyn­leg­ur þátt­ur í stjórn­mála­starfi og er verjanlegur, þegar dæg­ur­mál eru á ferð. En hann á ekki við, þegar um grund­vall­ar­mál sjálf­stæðrar þjóðar er að ræða.“

Svo skrifar Styrmir: „Ætla hefði mátt að Sjálf­stæðis­flokk­ur og Fram­sókn­ar­flokk­ur hefðu nýtt aðstöðu sína til að draga aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka með form­leg­um hætti. Þeir heykt­ust á því, þegar þeir höfðu aðstöðu til.

Og nú er enn vegið í sama knérunn í full­veld­is­mál­um með því að opna dyrn­ar fyr­ir Evr­ópu­sam­bandið til þess að ná tang­ar­haldi á einni helztu auðlind íslenzku þjóðar­inn­ar.“

Nánar er fjallað um málið á Miðjunni.