„Ég skal fúslega viðurkenna að ég botna ekkert í þessari konu.“
Þannig hefur Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, færslu á fésbók.
Þar tengir þingmaðurinn við frétt vísis sem sendursegir viðtal sem Sky tók við söngkonuna heimsþekktu sem haldið hefur verið fram að hafi skapað meiri verðmæti fyrir Ísland en nokkur annar listamaður. Í viðtalinu við SKY eftir því sem vísir.is segir frá kallar Björk forsætisráðherra og fjármálaráðherra sveitalubba og vísar þar til þess að þeir vilji í andstöðu við vilja meirihluta þjóðarinnar ekki hlífa hálendi Íslands í virkjanamálum.
„Er helst á því að hún sé með veruleikafyrringu á háu stigi. Niðurstaða loftlagsráðstefnunnar hvetur okkur til að nýta með skynsömum hætti endurnýjanlegar orkuauðlindir landsins til aukinnar verðmætasköpunar. Nýting þeirra mun skapa traustan grunn að Íslensku samfélagi, tækifæri til að gera svo mikið betur á mörgum sviðum. Ég reikna ekki með að Björk leggi sín lóð á þær vogarskálar, eða borgar hún skatta og gjöld á Íslandi. Spyr sá sem ekki veit,“ skrifar Jón Gunnarsson en þingmenn stjórnarandstöðu hafa kallað Jón „holdgerving stóriðjustefnunnar“ hér á landi.
Ekki síst vekur síðasta málsgreinin í færslu þingmannsins athygli um Björk Guðmundsdóttur:
„Hún er frekar dauf til augnanna á bakvið grímuna.“
Uppfært kl. 10:37. Eftir því sem fram kemur á Kjarnanum hefur Dagur Eggertsson borgarstjóri krafist afsökunarbeiðni af hálfu Jóns vegna ummællana um Björk.