Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, birtir athyglisverða grein í Kjarnanum. Þar bendir hann á viðsnúning Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins en Styrmir er mikill andstæðingur þriðja orkupakkans.
Styrmir skrifaði grein í helgarblað Morgunblaðsins þann 24. Ágúst en án þess að fjalla um hvað væri í pakkanum. Benedikt segir:
„Nú snýst greinin um einkavæðingu Landsvirkjunar og Orkuveitunnar, sem er alls ekki hluti orkupakkans.“
Styrmir birti aðra grein og tiltók þá ekki heldur í það skiptið hvað pakkinn innifæli. En Benedikt segir að hann þurfi alls ekki að svara þeirri grein, styrmir svari í raun sjálfum sér með grein frá því 3. nóvember 2006 undir heitinu: Samkeppni og einkavæðing á orkumarkaði.
Hér fyrir neðan má sjá brot úr greinum Styrmir og hvaða ár greinin birtist. Styrmir skrifar:
Styrmir 24.8.2019: Vilja þau markaðssvæða orkugeirann?
Styrmir 3.11.2006: Samkeppni og einkavæðing á orkumarkaði
Styrmir 24.8.2019: Markaðsvæðing orkugeirans er svo stórt mál að það væri eðlilegt ef einhverjir stjórnmálaflokkar vildu stefna að því af fúsum og frjálsum vilja að leggja slíka ákvörðun undir dóm þjóðarinnar.
Styrmir 3.11.2006: Reykjavíkurborg og Akureyrarbær hafa nú selt ríkinu hlut sinn í Landsvirkjun. Þessi ráðstöfun er skynsamleg út frá hagsmunum allra, sem í hlut eiga. Nú er komin á samkeppni á raforkumarkaði og hún stendur m.a. á milli fyrirtækja, sem ríkið og viðkomandi sveitarfélög eiga í.
Styrmir 24.8.2019: En kannski er það furðulegast í þessu máli að bæði Samfylking og VG vilji taka þátt í markaðsvæðingu orkugeirans. Hvernig má það vera? Þessir flokkar eru afsprengi Alþýðuflokks og Alþýðubandalags/Sameiningarflokks alþýðu- Sósíalistaflokks/Kommúnistaflokks Íslands. Hvenær var sú grundvallarbreyting samþykkt í æðstu stofnunum þessara tveggja flokka, að þeir hefðu nú komizt að þeirri niðurstöðu að bezt færi á því að einkavæða orkugeirann á Íslandi?(!)
Styrmir 3.11.2006: Hins vegar er engin ástæða til að útiloka að orkufyrirtækin færist í hendur einkaaðila. Ef hér þróast raunverulegur samkeppnismarkaður með framleiðslu og sölu á raforku, af hverju ætti hann að vera öðrum lögmálum undirorpinn en aðrir samkeppnismarkaðir?
Styrmir 24.8.2019: Einkavæðing grunnþjónustu, hverju nafni sem nefnist, hlýtur alltaf að vera álitamál og hefur ekki gefizt vel.
Styrmir 3.11.2006: Sömuleiðis hefur verið bent á að það sé ekki góð staða, m.a. út frá sjónarmiðum náttúruverndar, að ríkið sé bæði eigandi umsvifamesta orkufyrirtækisins og sé eftirlits- og úrskurðaraðili í málefnum orkugeirans.
Styrmir 24.8.2019: Í alla þá áratugi sem Sjálfstæðisflokkurinn stjórnaði Reykjavíkurborg varð þess aldrei vart að sá flokkur teldi það eftirsóknarvert að einkavæða Hitaveitu Reykjavíkur. Stöku raddir hafa komið upp innan flokksins um einkavæðingu Landsvirkjunar en þær hafa þagnað enda engar undirtektir fengið.
Styrmir 3.11.2006: Þótt það sé ekki tímabært að einkavæða Landsvirkjun er líka óþarfi að láta eins og einkaframtakið eigi ekkert erindi í orkuvinnslu og -sölu.