Eitt helzta aðalsmerki einkarekstrar í atvinnulífinu er sú áherzla, sem einkarekin fyrirtæki leggja á að halda yfirbyggingu í skefjum, sem ekki verður sagt um opinberaaðila - því miður, og virðist þá ekki skipta máli hverjir eru í stjórn hverju sinni.
En einmitt vegna þessarar áherzlu einkarekinna fyrirtækja vekur vaxandi athygli sú dýra yfirbygging, sem orðið hefur til í kringum félagasamtök atvinnulífsins.
Er einhver þörf á öllum þessum samtökum?
Er ekki meira vit í að sameina þau, nái meiri hagræðingu í starfsemi þeirra með fækkunfólks og minnkun þess dýra húsnæðis, sem undir þessa starfsemi fer.
Einhver borgar allan þennan kostnað.
Það eru að sjálfsögðu fyrirtækin sjálf og þar sem það hlýtur að vera umtalsverður kostnaður fyrir fyrirtækin að halda þessari starfsemi úti er líklegra en hitt að sá kostnaður komi fram í hærra verði vöru og þjónustu.
Nánar á styrmir.is
http://styrmir.is/entry.html?entry_id=2218522