Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir ómögulegt að spá fyrir um hvernig fari fyrir útgöngusáttmála Breta í breska þinginu. Málið sé í hershöndum innan þingsins og einna helst í Íhaldsflokknum sjálfum sem mun þurfa að bera málið í gegnum þingið.
Engin eining virðist vera innan stjórnarflokkanna varðandi útgöngusáttmálann og óvíst hvernig atkvæðagreiðsla muni fara. Margir þingmenn stjórnarflokkanna hafa lýst því yfir að þeir muni greiða atkvæði gegn sáttmálanum og ljóst er að Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hafi ekki meirihluta á bakvið sig sem stendur ef marka má yfirlýsingar margra þingmanna.
„Þá er þetta spurning um hvort einhverjir úr Verkamannaflokknum hugsanlega sitji hjá því valkosturinn er í margra augum algjörlega skelfilegur, að Bretar fari út samningslausir,“ segir Eiríkur sem líkir málinu við marglaga reikningsdæmi sem enga niðurstöðu sé hægt að fá í fyrr en kosið verður um sáttmálann í breska þinginu í desember.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018181129210