„þá þurfið þið að lesa fleiri greinar eftir mig og aðra um þetta drepleiðinlega mál“

Í bakþönkum Fréttablaðsins í dag segir Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins, að það hafi ekki verið skynsamlegt af Alþingi að fresta afgreiðslu þriðja orkupakkans. „Einkum vegna þess að þá þurfið þið að lesa fleiri greinar eftir mig og aðra um þetta drepleiðinlega mál,“ segir hann.

Hart hefur verið tekist á um þriðja orkupakkann síðastliðna mánuði og von er á að þingið taki hann fyrir þegar það kemur saman að nýju í lok ágúst. Á meðal þess sem andstæðingar þriðja orkupakkans hafa haldið fram að undanförnu er að stuðningsmenn pakkans tali ekki af einlægni fyrir honum og að Ísland ætti að beita sér fyrir því að taka orkumál úr EES-samningnum.

Davíð segist, þrátt fyrir að vera orðinn langþreyttur á umræðunni, ekki geta stillt sig um að svara þessum fullyrðingum. Hann segir:

„Þótt málið snúist aðallega um að uppfylla skyldur okkar gagnvart EES og standa vörð um samning sem hefur bætt lífsgæði allra landsmanna þá kemur meira til. Það felast miklir og óvefengj­anlegir hagsmunir í því fyrir Íslendinga að vera áfram hluti af orkusamstarfi við ESB jafnvel þótt við ákveðum að tengjast ESB ekki með sæstreng.“

Davíð segir að orkupakkarnir tveir sem þegar hafa verið samþykktir hafi „tryggt okkur eðlilegan og heilbrigðan markað með rafmagn, þar sem samkeppni ríkir í framleiðslu og sölu og strangar reglur gilda um þá einokun sem er óhjákvæmilega í flutningi og dreifingu, neytendum til hagsbóta.“

Hann segir einnig að það skipti miklu máli fyrir stór íslensk fyrirtæki að tæki sem þau framleiða og ganga fyrir rafmagni teljist uppfylla EES-kröfur um orkunýtingu og tæknilega staðla. „Það skiptir t.d. íslensk fyrirtæki máli sem framleiða tæki fyrir matvælaiðnað, og eru í fremstu röð í heiminum og skapa fjölda starfa hérlendis.

„Að lokum má nefna að hin hliðin á orkumálunum er loftslagsmálin. Það verður að skoða málin í samhengi. Og þar stöndum við frammi fyrir áskorunum sem við leysum ekki ein og er langbest fyrir okkur að vinna á vettvangi EES,“ segir Davíð að síðustu.