Fiskistofa hefur svipt fimm norsk uppjávarskip veiðileyfi við Ísland eftir að þau tilkynntu um afla sem var ekki í samræmi við löndunartölur. Sviptingin er varanleg, þar sem íslensk lög heimila ekki að leyfi til veiða sé veitt að nýju. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Fiskifrétta.
„Þetta eru varanlegar sviptingar, skipin voru svipt veiðileyfi samkvæmt 8. grein laganna. Þar er ekkert tiltekið um tímalengd. Hins vegar bannar 6. grein laganna að þeim verði veitt leyfi að nýju,“ segir Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs Fiskistofu, í samtali við Fiskifréttir og vísar til laga nr. 22/1998 um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.
Audun Maråk, framkvæmdastjóri Samtaka norskra útgerðarmanna kvartar undan niðurstöðunni og þykir refsingin of harkaleg. Hann segir að sambærilegt brot myndi varða sektum í Noregi og aflaheimildir yrðu skertar sem umframaflanum nemur. Auk þess geti munur verið á vigt eftir því hvar aflinn er vigtaður og auðvelt sé gera mistök við skráningu afla á Íslandi vegna stuttrar siglingaleiðar frá miðum til löndunarstaðar.
Samtökin hafa átt í viðræðum við íslensk stjórnvöld í þeirri von að hægt sé að milda refsinguna.