Í kjölfar upplýsinga úr Panamskjölunum jókst meðvitund um að undanskotum væri beitt með markvissum hætti til að komast undan því að borga skatta. Skattaundanskot og peningaþvætti byggja mikið á notkun reiðufés. Almenn reiðufjárnotkun er afar lítil á Íslandi borið saman við önnur lönd og eru rafræn kortaviðskipti ráðandi. Til að torvelda möguleika á skattaundanskotum og til að torvelda peningaþvætti er lagt til að notkun reiðufjár verði takmörkuð. Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra lýsir bókstaflega yfir stríði gegn skattsvikum og hann boðar stórsókn gegn svikastarfsemi á öllum sviðum.
rtá
Nánar www.stjornarrad.is