Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir erfiðum aðstæðum á Landspítala vegna mikils álags á bráðamóttöku spítalans á fundi ríkisstjórnar síðastliðinn föstudag.
Svandís segist í sérstakri yfirlýsingu leggja áherslu á að hratt verði unnið að verkefnum sem ákveðin hafa verið til að efla heilbrigðiskerfið og styrkja mönnun þess. Hún vísar til yfirlýsingar forsætis- fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra um heilbrigðiskerfið og mönnun þess í tengslum við kjarasamninga BHM nýlega.
Um miðjan febrúar var sérstaklega mikið álag. Aðfaranótt 13. febrúar, voru 63 sjúklingar á bráðamóttökunni þar sem rúmstæði eru fyrir 32 sjúklinga. Bið eftir læknisskoðun var allt að sex klukkustundir sem að mati sjúkrahússins er of langur tími til að ábyrgjast megi öryggi allra sjúklinga sem á móttökuna leita og skapi aukna hættu á alvarlegum atvikum.
Við þessar aðstæður hafa sjúklingar þurft að bíða í allt að fimm sólarhringa á bráðamóttöku eftir viðeigandi legurými á almennri deild. Vegna skorts á hjúkrunarfræðingum voru 35 rými lokuð á spítalanum og nýlega þurfti að loka tveimur gjörgæslurýmum af sömu ástæðum. Auk erfiðleika vegna skorts á hjúkrunarfræðingum hefur Landspítalinn bent á aukið álag vegna fjölgunar ferðamanna en á síðasta ári voru 17% legudaga á gjörgæslu vegna ferðamanna.