Sunna Karen Sigurþórsdóttir blaðakona á Fréttablaðinu segir stríðið gegn fíkniefnum löngu tapa og að það viti allir. Refsistefnan hafi skilað litlu öðru en fordómum og hræðslu gagnvart fíkniefnaneytandanum.
Greinir Sunna frá þessu í leiðara Fréttablaðsins í dag en þar ræðir hún um nýlegt frumvarp Halldóru Mogensen, þingflokksformanns Pírata, sem felur í sér að lögleiða neysluskammta.
„Fíkniefnin flæða til landsins og skammturinn fæst nú á svipuðu verði og bíómiði. Sá sem er ánetjaður vímuefnum er sjúklingur en ekki glæpamaður. Þetta ætti öllum að vera löngu orðið ljóst,“ segir Sunna sem telur að markmið frumvarpsins sé að hætt verði að líta á þá sem neyta fíkniefnis sem glæpamenn og að þeim verði veitt aðstoð en ekki refsing.
Frumvarpið segir þó að áfram skuli vera bannað að flytja efni inn og út úr landi, selja þau eða framleiða. Þá segir Sunna að þær þjóðir sem fylgt hafi í spor Portúgala, með afglæpavæðingu fíkniefna, hafi náð góðum árangri.
„Fíkniefnin eru komin til að vera, því verður ekki breytt. Þar af leiðandi ætti hið opinbera að reyna að stýra farvegi þeirra og jafnvel að íhuga að hreinlega útvega fíklum efnin. Þá að minnsta kosti færast völdin úr höndum undirheimanna en það er þar sem ofbeldið og mannúðarleysið þrífst. Eiturlyfjadreifing hins opinbera gæti jafnframt útrýmt svarta markaðnum með lyfseðilsskyld lyf.“
Viðurkennir Sunna að þörf sé á róttækari aðgerðum gegn fíkniefnavandanum en að þetta sé að minnsta kosti fyrsta skrefið í rétta átt.
„Við þurfum að hætta að berja höfðinu við steininn og horfast í augu við vandann. Samhliða þarf að fjölga meðferðarúrræðum og bæta í forvarnir og fræðslu. Allt kapp ætti að setja á aðferðir til skaðaminnkunar.“
Kallar Sunna því eftir stjórmálamanni sem þorir að ræða þessa hluti upphátt og að hrinda þeim í framkvæmd.