„sumir atvinnurekendur eru í hefndarhug gegn starfsfólki“

Efling – stéttarfélag hefur sent bréf til forsvarsmanna hótela og hópbifreiðafyrirtækja með áskorun um að láta starfsfólk ekki gjalda fyrir störf sín fyrir Eflingu í aðdraganda samningsgerðar, þar með talið í tengslum við verkföll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu.

„Því miður hefur reynsla undanfarinna vikna kennt okkur að sumir atvinnurekendur eru í hefndarhug gegn starfsfólki sínu. Það er alltof algengt að atvinnurekendur telji sig hafa heimildir til að refsa starfsfólki fyrir þátttöku í starfi stéttarfélags, til dæmis í verkfallsvörslu eða að hafa komið fram opinberlega og tjáð sig um aðstæður á sínum vinnustað. Einnig höfum við séð dæmi um eins konar hóprefsingar, svo sem óheimilan launafrádrátt hjá IcelandAir Hotels. Skilaboð okkar til atvinnurekenda eru: Nú er mál að linni. Virðið réttindi starfsfólks,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar.

Í sama streng tekur Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og lýsir slíkum aðgerðum sem kúgunarkúltúr. „Á síðustu vikum höfum við orðið vör við eitthvað sem ég get best lýst sem kúgunarkúltúr á íslenskum láglaunavinnustöðum. Atvinnurekendur hafa of lengi komist upp með gerræði og yfirgang, væntanlega af því að þeir halda að láglaunafólk eigi sér ekki rödd og málsvara. Verkfallsaðgerðir okkar, meðal annars hinn stórglæsilegi verkfallsdagur 8. mars þar sem láglaunakonur sýndu mátt sinn og megin, sanna hins vegar að svo er ekki. Við erum sterk, við erum stolt og við stöndum saman um réttindi hvers annars. Þetta eru skilaboðin okkar til atvinnurekenda og þau breytast ekki þótt kjarasamningur liggi fyrir.“

Efling boðaði sem kunnugt er til víðtækra verkfallsaðgerða á hótelum og í hópbifreiðafyrirtækjum í aðdraganda kjarasamningsgerðar og til aðgerða kom dagana 8. og 22. mars og 1. - 2. apríl. Í tengslum við undirritun samningsins var frekari verkfallsaðgerðum Eflingar aflýst og starfa aðilar vinnumarkaðarins nú undir friðarskyldu.

Í tilkynningunni segir að talsvert hafi verið um verkfallsbrot í tengslum við verkfallsaðgerðirnar og að stéttarfélaginu hafi einnig borist fregnir af ýmsum óeðlilegum þrýstingi einstakra atvinnurekenda í garð starfsmanna. Eru þar nefnd dæmi um loforð um greiðslur, hótanir um frádrátt greiðslna og að starfsmenn hafi verið látnir gjalda á annan hátt fyrir þátttöku í verkföllum.

Þar er einnig bent á að samkvæmt 4. grein laga 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur er atvinnurekendum með öllu óheimilt að reyna að hafa áhrif á þátttöku starfsmanna í starfi stéttarfélaga, þar með talið verkföllum.