Sumarfundir ríkisstjórnarinnar við mývatn

Ríkisstjórnin kom saman til fundarhalda við Mývatn í dag. Auk ríkisstjórnarfundar og vinnufunda ríkisstjórnarinnar átti ríkisstjórnin fund með fulltrúum sveitarfélaga á Norðausturlandi og Eyþingi, landshlutasamtökum sveitarfélaga á svæðinu. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Þar segir enn fremur:

Fjölmörg áherslumál sveitarfélaganna komu til umræðu á fundi ríkisstjórnar með fulltrúum sveitarfélaganna, m.a. umhverfismál, þ.m.t. sorp- og fráveitumál, samgöngumál og almenningssamgöngur, heilbrigðismál, störf á landsbyggðinni, svo sem störf án staðsetningar, menningarmál, raforkumál, landbúnaðarmál og byggðamálefni almennt, þ.m.t. málefni brothættra byggða.