Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, veltir því fyrir sér hver næstu skref Framsóknarflokksins verði eftir að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, steig að mati Styrmis fyrstu skrefin til þess að skapa sér og flokk sínum sérstöðu vegna þriðja orkupakkans.
Styrmir vísar þar til greinar eftir Sigurð Inga, sem birtist á Kjarnanum í gær. Í pistli sínum á Styrmir.is í gær segir hann greinina sæta tíðindum og að með henni hafi Sigurður Ingi sett nokkurs konar gult ljós á þriðja orkupakkann, sem Styrmi þykir skref í rétta átt.
„Líklegt má telja, í ljósi orða hans sjálfs að innan þings muni Framsókn leggja áherzlu á að þingið flýti sér hægt. Sigurður Ingi segir að þeim tíma sé vel varið, sem fari í að leita sátta og einingar. Hann segir líka að þingmenn eigi að hlusta á raddir fólksins í landinu,“ skrifar Styrmir í pistli sínum á Styrmir.is í dag.
Þar segir hann Framsókn standa frammi fyrir tveimur möguleikum: „Þetta getur í fyrsta lagi þýtt að Framsóknarmenn muni beita áhrifum sínum til þess að málið verði ekki keyrt í gegnum þingið á þeim hraða, sem fyrstu upplýsingar af sameiginlegum fundi þingflokks stjórnarflokkanna í Ráðherrabústaðnum fyrir nokkrum vikum bentu til að stefnt væri að.
Í öðru lagi gæti þetta bent til þess að Framsóknarmenn mundu reyna að fá málinu frestað fram á haustið.“
Styrmir segir að nú muni allra augu beinast að þingmönnum Framsóknarflokksins, „hvað þeir segja og gera og segja ekki og gera ekki.“
Hann segir það skipta máli fyrir þann flokk í þeirri baráttu, um fylgi ákveðins hóps kjósenda, sem þeir eiga í við Miðflokkinn.
„Og þetta pólitíska frumkvæði Sigurðar Inga vekur vonir hjá andstæðingum þessa máls um að stjórnarflokkarnir sjái að sér,“ skrifar Styrmir að lokum.