Magnús Scheving var brautryðjandi í þolfimi her á landi en þekktastur er hann fyrir sigurgöngu Latabæjar. Í viðtali í veglegu afmælisriti Viðskiptablaðsins fer Magnús ítarlega í saumana á Latabæjarævintýrinu. Ævintýri sem teygði sig yfir 26 ár í heildina og hundruð manna höfðu atvinnu af því hér á landi. Magnús segir að ef hann gæti farið aftur í tímann myndi hann líklega ekki bjóða sér og sínum upp á vinnuna sem fylgdi því að skapa Latabæ.
„Þetta var bara of mikið þegar maður lítur til baka. Ég hefði líka viljað njóta ferðalagsins betur, en það var bara svo lítið svigrúm og álagið var svo mikið.“
Árið 2011 keypti Turner-fjölmiðlasamsteypan Latabæ og voru síðustu 26 þættirnir framleiddir fyrir hana á næstu þremur árum. Eftir það ákvað Magnús að hætta og í samningum stóð að Magnús mátti ekkert vinna nema fyrir sjálfan sig næstu tvö árin eftir að hafa sagt skilið við Latabæ. Magnús keypti þá tvö hús til að gera upp. Sumarbústað á Þingvöllum og veitingastaðinn Rok. Þegar hann var við vinnu við ROK átti sér stað skondið atvik. Magnús lýsir því á þennan hátt:
„Það var bráðfyndið að einhvern tímann seint um kvöld stóð ég drulluskítugur í vinnugallanum ofan í skurði að hamast við að klára endurbygginguna á Rok, þegar tvær mexíkóskar stelpur löbbuðu framhjá og spurðu mig til vegar. Þær báru síðan kennsl á mig og sögðu í áfalli:
„You are Sportacus! Oh my god, what happened to you?!“
„Þeim fannst þetta ansi mikið stjörnuhrap, sérstaklega í samanburði við lífsstílinn á fólki sem hefur náð frægð í Suður-Ameríku eða hvar sem er raunar.“