Stjórnarráðið hefur ekki uppfyllt skilyrði jafnlaunavottunar þrátt fyrir að öll tíu ráðuneytin hafi átt að hljóta jafnlaunavottun fyrir lok síðasta árs. Forsætisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og velferðarráðuneytið, sem hefur nú verið skipt upp í tvö ráðuneyti, hafa öll hlotið jafnlaunavottun. Ráðuneytin fimm sem eiga eftir að öðlast jafnlaunavottun eru dómsmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitastjórnaráðuneytið, utanríkisráðuneytið, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið. Kjarninn spurðist fyrir í ráðuneytunum hvar hvert ráðuneyti stæði í jafnlaunavottunarferlinu en öll ráðuneytin fimm eru nú í lokaúttekt vottunar og búast öll við niðurstöðu síðar í þessum mánuði.
Nánar á
https://kjarninn.is/frettir/2019-01-07-stjornarradid-jafnlaunavottunar/