Stjórnarandstaðan verður samheldin

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna sagði á Þjóðbraut í gærkvöldi að stjórnarandstaðan væri nú þegar farin að hittast og stilla saman strengi sína. Samheldni verði meðal flokkanna fjögurra „Sem þingmaður stærsta stórnarandstöðuflokksins á þingi get ég sagt það já, það verður mikil og sterk samstaða“. 

 

Rósa Björk var gestur á Þjóðbraut ásamt Vilhjálmi Árnasyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins.