Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa Steinunni Valdísi Óskarsdóttur skrifstofustjóra yfir nýrri skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.
Steinunn Valdís var borgarstjóri Reykjavíkur frá 2004-2006. Hún lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla árið 2018. Árin 1986-1987 var Steinunn Valdís stjórnarráðsfulltrúi á launaskrifstofu fjármálaráðuneytis og borgarfulltrúi árin 1994-2007. Hún sat á Alþingi fyrir Samfylkinguna frá 2007-2010. Frá 2011-2017 var Steinunn Valdís sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu innviða í innanríkisráðuneytinu. Frá febrúar 2017 hefur hún starfað sem sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu ferðamála í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Í tilkynningunni segir að Steinunn Valdís hafi víðtæka þekkingu á jafnréttismálum. Hún starfaði m.a. fyrir Kvenfélagasamband Íslands árin 1992-1998 og sem framkvæmdastjóri kvennaheimilisins Hallveigarstaða 1996-1998. Hún var borgarfulltrúi fyrir Kvennalistann og síðar Reykjavíkurlistann og sat á þeim tíma í jafnréttisráði. Hún var formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar og formaður Svanna, lánatryggingarsjóðs kvenna um árabil.
Umsækjendur um embættið voru 30 talsins. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat sex umsækjendur vel hæfa og var Steinunn Valdís ein þeirra.